Kjúklingabaunakarrý úr smiðju Halldórs Steinsson yfirmatreiðslumanns á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði.
Pistasíuhjúpuð seljurót:
- 2 dósir kjúklingabaunir
- 1 laukur
- 2 hvítlauksrif
- 1 rauð paprika skorin í bita
- 1 lítið brokkolí og blómkálshaus skorið í bita
- 4-5 gulrætur skornar í bita
- 2 tsk karrýduft
- 1-2 dós kókosmjólk
- 1 dós niðursoðnir tómatar
- 1 msk grænmetiskraftur
- 1 tsk cumin
- 2 tsk smátt skorið engifer
- 1 tsk paprikukrydd
- 2 msk ferskur kóríander
Aðferð:
- Léttsteikið lauk, hvítlauk og engifer í olíu í potti. Bætið við kryddi, kókosmjólk, tómötum og grænmetiskrafti og látið malla á vægum hita í 15 mínútur.
- Bætið við kjúklingabaunum, öðru grænmeti og látið malla í stutta stund. Gott að steikja grænmetið aðeins áður en það fer í sósuna.
- Ef sósan er of þunn má nota maísmjöl til að þykkja.
