Saltur parmesan fer einstaklega vel með fiski og döðlusalat og jógúrtsósa býður upp á enn meiri hollustu. Mér finnst einfaldara að elda hann í ofni en hann er ekki síðri af pönnu. Hægt er að nota hvaða fisk sem er en hér var notuð langa. Passaði ágætlega fyrir sex.
Þú þarft:
- 800 g langa
- 1 bolli parmesan
- 1 tsk hvítlaukssalt
- 1 tsk pipar
- Ólífuolía
- Basilíka
Aðferð:
- Skerðu fiskinn í hæfilega bita og þerrið vel. Blandið olíunni og kryddinu saman í skál og veltið fisknum upp úr olíunni.
- Setjið fiskinn á bökunarpappír og stráið rifnum parmesan og basilíku yfir. Bakið við 230 gráður í 10-12 mínútur.
Döðlusalat:
- Salat
- Döðlur
- Kirsuberjatómatar
- Paprika
- Grískur fetaostur
- Kasjúhnetur
Aðferð:
- Ristið kasjúhneturnar. Setjið salatið í skál og hin hráefnin fallega yfir.
Jógúrtsósa:
- Grísk jógúrt
- Sítrónusafi
- Mynta
- Sjávarsalt
Aðferð:
- Blandið öllu saman en sósan verður bara betri ef hún fær að taka sig aðeins í ísskápnum.
Myndir: Pálmi Jónasson




