Ottolenghi með eigin útgáfu af franskri lauksúpu með kjúklingabaunum og Hawaij kryddblöndu frá Jemen. Verið óhrædd við að aðlaga uppskriftina að eigin eldhúsi. Ég átti basilíku í glugganum en ekki kóríander og fenugreekfræ voru ekki til í kryddskápnum. Eins og venjulega spurði ég Google um „Fenugreek replacement“ og fékk sinnepsfræ sem voru notuð í staðin. Ég átti ekki alveg svona mikinn lauk og sjálfur nota ég eingöngu ósaltað smjör. Baunir þarf að skola vel og rækilega. Ostablandan í uppskriftinni er yfirdrifin á brauðið svo ég notaði afganginn sem skraut á súpuna. Uppskriftin passar fyrir fjóra.
Þú þarft:
- 50 g ósaltað smjör
- 2 msk ólífuolía
- 250 g tómata passata
- 30 g ferskt kóríander
- 1 dós kjúklingabaunir
- 1,5 l kjúklinga- eða grænmetissoð
- Salt og pipar
Kryddblanda:
- 1 msk kóríanderfræ
- 2 tsk cumminfræ
- 2 negulnaglar
- 6 kardimommur (fræin)
- 1/2 tsk fenugreekfræ
- 1/2 tsk túrmerik
Ostabrauð:
- 220 g cheddar ostur
- 10 g ferskt kóríander
- 1 stór hvítlauksgeiri
- 6 sneiðar súrdeigsbrauð
- 15 g ósaltað smjör
- 1 msk sinnep
Aðferð:
- Skerið laukinn í þunnar sneiðar og látið malla í olíu og smjör í klukkustund. Hrærið á 5-10 mínútna fresti og leyfið honum að brúnast vel.
- Steikið kryddfræin á meðan í potti í 5 mínútur og blandið svo saman í morteli með túrmerik.
- Þegar laukurinn er orðinn vel karmeliseraður er kryddblöndunni bætt við, tómata passata og fersku kryddi. Leyft að malla í 5 mínútur. Þá er baunum, soði og vel af salti og pipar bætt saman við og soðið áfram í um hálftíma.
- Ofninn er stilltur á grill og osturinn rifinn í skál með fersku kryddi, hvítlauk og pipar.
- Þegar súpan er nánast tilbúin er brauðið sett undir grillið í um eina mínútu. Brauðsneiðunum er þá snúið og smurðar með sinnepi og smjöri og ostablandan þar ofaná. Grillað í 3-4 mínútur í viðbót og hver sneið skorin í þrjá bita.
- Súpan sett í diska, ostabrauð og aukaostur yfir súpuna. Borið fram með restinni af ostabrauðinu og aukaosti í skál.
Mynd: Pálmi Jónasson.
