Ragna Ingólfsdóttir badmintonhetja með meiru, deildi þessari gómsætu uppskrift með okkur. Uppskriftina miðar hún við tvo.
Þú þarft:
- 500 g keila
- Salt, pipar, turmerik
- Smá ólívuolía
- 1 dl hýðishrísgrjón
- 5-6 dl vatn
- ½-1 blómkálshaus
- 4-6 konfekt tómatar
- 1 þroskað avókadó
- 100 g grísk jógúrt
- Krydd eftir smekk; salt, karrý, papríka og cayenne pipar
- 1-2 tsk tamari sósa
- Vínber eftir smekk
Aðferð:
- Skerið keiluna í bita. Keilan er síðan marineruð í smá stund með salti, pipar, turmerik og smá ólívuolíu. Því næst er keilan sett í eldfast mót í 200 gráðu heitan ofn í um 20 mínútur. Ég nota síðan smá smjör með fiskinum.
- Sjóðið vatn, þegar suðan er komin upp látið þá hrísgrjónin út í vatnið og hrærið í. Lækkið hitann og látið grjónin sjóða í 15 mín. Smakkið grjónin, sjóðið þau lengur ef þau eru enn of hörð.
- Skerið blómkálið og tómatana smátt og setjið í skál. Maukið avókadóið. Hrærið saman grískri jógúrt, salti, karrý, cayenne pipar, papriku kryddi, tamarisósu og avókadóinu. Setjið sósuna saman við grænmetið. Skerið vínberin í tvennt og stráið yfir.
Verði ykkur að góðu!
