Hér er uppskrift úr smiðju Halldórs yfirkokks á Heilsustofnun NLFÍ. Með þessari bragðgóðu súpu er gott að hafa naan brauð. Gott er að gera naan deigið kvöldið áður eða með sæmilegum fyrirvara samdægurs.
Þú þarft:
- 1 laukur, saxaður
- 2 hvítlauksrif, söxuð
- 1 msk saxað engifer
- 1/2 tsk túrmerik
- 1 tsk cummin fræ
- 1 tsk svört sinnepsfræ
- 2 tsk möluð kóríander fræ
- 300 g blómkál
- 100 g kartöflur
- 1 lítri grænmetissoð
- 2 msk ferskt kóríander
- Salt og pipar
Aðferð:
- Laukur og hvítlaukur stektir í olíu í potti í 2-3 mínútur ásamt fræunum. Bætið grænmetinu við og soðinu. Látið sjóða í 20-30 mínútur
- Smakkið til með salti og pipar og fersku kóríander.
Naan brauð:
- 1 kg heilhveiti
- 1 lítri AB-mjólk
- 1 tsk lyftiduft
- 1 tsk matarsódi
Aðferð:
- Deigið er flatt út og penslað með bræddu smjöri með salti, pipar og/eða hvítlauk.
- Bakað í ofni við 200 gráður í 5-10 mínútur.

Halldór Steinsson matreiðslumaður á Heilsustofnun NLFÍ
