Matgæðingurinn Kristín Pálmadóttir Thorlacius bauð upp á þessa ljúffengu og bragðmiklu tómatsúpu. Uppskriftin passar ágætlega fyrir sex með góðu brauði á kantinum.
Tómatsúpa:
- 16 tómatar
- 2 rauðar paprikur
- 1 stór laukur
- 2 heilir hvítlaukar, þverskornir
- 2 msk olía
- 1 msk balsamik edik
- 1 tsk paprikuduft
- 1 tsk óreganó
- 1 tsk chili flögur
- Salt og pipar
- 1/2 lítri grænmetissoð
- Basilíka
- 3 msk tómatpúrra
- 100 ml kókosmjólk
Aðferð:
- Setjið grænmeti, olíu, edik og krydd í eldfast fat. Bakið í klukkutíma við 200 gráður eða aðeins lengur til að grænmetið sé vel bakað. Hrærið í grænmetinu einu sinni eða tvisvar á meðan það eldast.
- Setjið grænmetið í pott með soði, lúku af basilíku og tómatpúrru. Blandið með töfrasprota og leyfið þessu að malla aðeins. Kókosmjólk er sett í blálokin eða rjómi fyrir þá sem það vilja.
- Súpan sett á disk og skreytt með ferskri basilíku og góðri ólífuolíu. Gott að hafa grillað ostabrauð með súpunni.
Verði ykkur að góðu!
Mynd: Pálmi Jónasson
