Jólakontekt sem Solla á Gló deildi með lesendum Náttúrulækningafélagsins. Heimagert marsípan og súkkulaði með engum viðbættum sykri.
Súkkulaði:
- 1 dl kaldpressuð kókosolía eða kakósmjör
- ½ dl hreint kakóduft
- ½ dl hlynsíróp
- 1 tsk vanilluduft eða dropar
- 1-2 msk lucuma (má sleppa)
- Örlítið salt
Aðferð:
- Setið kókosolíudósina stutta stund í heitt vatn (40°C er passlegt) eða bræðið kakósmjörið yfir vatnsbaði.
- Setjið olíuna eða smjörið í skál með kakódufti, sírópi og vanillu. Ef þið eigið lucum eða mesquite þá hrærið smá útí.
Marsípan:
- 75 gr heslihnetur, malaðar fínt
- 1/8 tsk salt
- ¼ dl hlynsíróp
- ½ tsk vanilludropar eða duft
- ¼ dl kókosolía eða kakósmjör
- ¼ – ½ tsk möndludropar
Aðferð:
- Setjið allt nema kókosolíu eða kakósmjör í matvinnsluvél og blandið vel saman. Bætið við olíu og smjöri og klárið að blanda.
- Setjið fyllinguna inn í frysti í svona 10-15 mínútur til að hún geti stífnað.
- Setjið konfektformin inn í frysti í minnst 30 – 60 mín. Hellið fljótandi súkkulaði í formin og veltið því upp eftir börmunum. Setjið síðan fyllinguna í formin og endið á að setja súkkulaði til að loka molanum.
Verði ykkur að góðu!
