Í Svíþjóð kynntumst við sænskum kókoskúlum sem fást þar í öllum verslunum. Þær urðu staðalbúnaður um helgar og við buðum öllum gestum “Delicatoboll”. Þær eru dæmi um svona vinsælt nammi eða bakkelsi sem óvart er vegan. En þær voru auðvitað stútfullar af sykri og smjörlíki. Kaffið í þeim er sennilega það sem gefur þeim sitt einkennandi bragð en þrátt fyrir kaffibragðið þá eru kúlurnar vinsælir hjá börnum í Svíþjóð. Ég ákvað að endurvekja þessa sænsku ánægju með hollara hráefni og ég verð að segja að útkoman er alveg keimlík.
Þú þarft:
- 2 dl haframjöl
- 2 dl kókosmjöl (auka til að rúlla upp úr)
- 12-14 ferskar döðlur/ 6-7 medjool (sem eru þessar stóru, ca 30gr hver daðla)
- 1/2 dl kókosolía (bráðin)
- 1/2 tappi vanilludropar
- 4,5 msk kakó
- 1/2 dl kaffi
- Hnífsoddur sjávarsalt
Aðferð:
- Byrjið á að útbúa kaffið. Ég nota pressukönnu og blanda frekar sterkt kaffi.
- Setjið saman steinhreinsaðar döðlur, haframjöl, kókos og kakó og blandið vel í matvinnsluvél.
- Bætið við kókosolíu og salti og setjið matvinnsluvélina aftur af stað. Á meðan hún er í gangi hellið þið kaffinu rólega saman við.
- Nú ætti að vera hægt að búa til litlar kúlur. Ef ykkur finnst deigið ekki nógu klístrað til að móta kúlur þá er hægt að bæta við meira kaffi eða kókosolíu.
- Rúllið upp úr kókos og njótið! Þær geymast best í frysti.
Verði ykkur að góðu.
