Hér er uppskrift af gómsætri graskerssúpu sem er úr smiðju eldhúss Heilsustofnunar NLFÍ. Þessi súpa er frábær með góðu naan brauði.
Graskerssúpa:
- 2 msk jurtaolía
- 1 laukur, saxaður
- 2 hvítlauksgeirar, saxaðir
- 300 g af skrældu graskeri, skorið í ca 3 cm bita
- 100 g af skrældum karftöflum, saxaðar í bita
- 600 ml af grænmetissoði
- 1 dós kókosmjólk
- 1 tsk cumminfræ
- 2 tsk safi úr lime
- Sjávarsalt og svartur pipar eftir smekk
Aðferð:
- Brúnið lauk, hvítlauk og cumminfræin í olíunni við meðalháan hta í nokkrar mínútur.
- Bætið við graskerinu, kartöflum, soði og kókosmjólk. Sjóðið þetta við vægan hita í um 20 mínútur, eða þar til grænmetið er orðið vel meyrt. Maukið þetta svo með töfrasprota eða í matvinnsluvél.
- Limesafa er bætt saman við og kryddað til. Gott að nota sýrðan rjóma með.
Naan brauð:
- 1 kg heilhveiti
- 1 lítri AB-mjólk
- 1 tsk lyftiduft
- 1 tsk matarsóti
- Ögn af salti, pipar eða hvítlauk
Aðferð:
- Betra er að laga degið kvöldinu áður.
- Deigið er svo flatt úr, penslað með bræddu smjöri og kryddað með salti, pipar og jafnvel hvítlauk.
- Bakað í ofni við 200 gráður í 5-10 mínútur.
