Grænmetishleifur með gulrótum og möndlum úr smiðju Halldórs Steinssonar á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Passar vel með nánast hvaða meðlæti sem er.
Þúr þarft:
- 200 g ósoðnar rauðar linsur
- 300 g rifnar gulrætur
- 200 g rifnar sætar kartöflur
- 200 g rifin sellerírót
- 100 g smátt skorinn blaðlaukur
- 150 g ristaðar möndluflögur
- 4 msk tómatpúrra
- 3 pressuð hvítlauksrif
- 2-3 msk mangó chutney
- 1-2 tsk grænmetiskraftur
- 2 tsk túrmerik
- 2 msk saxað kóríander
- 1 tsk cumminduft
- 1/4 tsk cayenne pipar
- Salt og pipar
Aðferð:
- Byrja á því að sjóða linsurnar í potti með lárviðarlaufi og smá grænmetiskrafti. Steikja allt rótargrænmeti, blaðlauk, hvítlauk og krydd þangað til það er meyrt og færa það yfir í skál blanda saman við linsurnar, mangóchutney, tómatpúrru, grænmetiskraft og síðast möndluflögur salt og pipar.
- Blandan á að vera heldur þétt í sér ef hún er of blaut má bæta við dálitlu af haframjöli eða bókhveitimjöli. Sett í smurt jólakökuform og bakað í ofni við 190 gráður í 25-30 mínútur.
Mynd: Halldór Steinsson
