Þessi girnilega silungsuppskrift kemur frá matgæðingnum Gosiu Madej. Silungur er stútfullur og vítamínum og omega-3 fitusýrum. Það er góð næringarregla að borða fisk tvisvar í viku.
Þú þarft:
- 1 silungur
- 100 g möndlur
- 2,5 msk hunang
- 60 ml ólífuolía
- Salt og pipar
- 1/2 sítróna
Aðferð:
- Möndlur malaðar í matvinnsluvél. Ólífuolían, tvær matskeiðar af hunangi og safi af hálfri sítrónu sett í skál og öllu blandað saman. Þessu er smurt á silunginn og möndlur settar yfir ásamt salti og pipar.
- Eldað í ofni í 15-20 mínútur við 175 gráður.
Sósan:
- 150 gr grísk jógúrt
- 2 msk hunang
- 5 msk hunangssinnep
- Salt og dill
Aðferð:
- Öllu blandað í skál og kælt vel. Saltið og dillið er valkvætt.
