Grasaferð Náttúrulækningafélags Reykjavíkur í Heiðmörk í gær var sérlega vel heppnuð. Ásdís Ragna Einarsdóttir fræddi félagsmenn um algengar íslenskar lækningajurtir sem nota má til heilsubótar sem te, krydd eða til matargerðar. Blíðskaparveður var á Jónsmessunni og jurtirnar komnar vel á veg í blóma. Að neðan má sjá nokkrar fínar myndir úr ferðinni.
Myndir: Hera Pálmadóttir Thorlacius, Sigrún Thorlacius og Björg Stefánsdóttir.










