Það er enginn viðbættur sykur í þessum bragðgóðu brúnkum. Uppskriftin er upphaflega fengin frá matgæðingnum Guðrúnu Veigu. Hér hefur hún verið aðlöguð nokkuð að smekk og stærð kökuforms.
Botn:
- 200 g kasjúhnetur
- 200 g döðlur
- 20 g kakó
Krem:
- 1 avókadó
- 5 msk hunang
- 20 g kakó
- 2 tsk sítrónusafi
- Sjávarsalt
Aðferð:
- Ristið og saxið hneturnar og blandið með döðlum og kakó í matvinnsluvél. Ef vélin á erfitt með döðlurnar er hægt að saxa þær fyrst vel niður og sjóða í nokkrar mínútur. Smyrjið þessu í kökuform sem klætt er bökunarpappír.
- Blandið saman öllu sem á að fara í kremið í hrærivél eða matvinnsluvél. Smyrjið þessu á kökuna.
- Frystið í minnst hálftíma og skerið svo í bita.
- Skreytið með berjum og kókosflögum eða því sem hugurinn girnist.
Myndir: Kristín Pálmadóttir Thorlacius

