„Er ég lít um öxl þá ljóma mörg ljós minninga og bros sem lifna við upprifjun ýmissa atvika. Þegar ég minnist þeirra hugsa ég m.a. til Reykjlundar, m.a. reiðtúranna og róðraræfinga á Hafravatni, fegurðar, garða og skógar á Kristnesi ásamt sundlauginni þar og á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Mikið liggur við að bjóða öllum sem þurfa á þjálfun að halda vegna veikinda, slysfara eða öldrunar kost á að njóta sjúkra- eða iðjuþjálfunar í fagurri náttúru við bestu heilbrigðisaðstæður.“
Þetta segir Jón Hlöðver Áskelsson tónlistarmaður í aðsendri grein í Morgunblaðinu og Akureyri.net. Árið 1989 þurfti hann að gangast undir stóra heilaaðgerð þar sem fjarlægt var blóðæxli og hefur frá þeim tíma nýtt sér endurhæfingu víða. „Ég varð áttræður í fyrra og þau ár frá 44 ára aldri, þ.e. rúmlega 37 ár, get ég sannarlega þakkað að hluta læknum, sjúkraþjálfurum og öðru heilbrigðisstarfsfólki sjúkrahúsa og endurhæfingarstöðva.“
Jón Hlöðver segir mikilvægt að standa vörð um þessa endurhæfingu. „Stöndum vörð um og sýnum í verki stuðning við endurnýjun húsa- og tækjakosts á Reykjalundi! Vanrækt viðhald er skuld ríkis og þjóðar sem á að greiða. Sama gildir um endurhæfingu á Kristnesi. Hlýðum röddum þess fjölda fólks sem hliðstæða reynslu hefur eins og ég.“
