Þessi bragðgóða og næringarríkar uppskrift er tekin af heimasíðu Melting og Vellíðan. Þegar kalt er í veðri og snjór yfir öllu er fátt betra en að ylja sér á heitum pottréttum. Ekki skemmir fyrir að pottrétturinn er stútfullur af hollu grænmeti, baunum og er vegan. Þessi réttur er enn betri daginn eftir.
Þú þarft:
- 2-3 msk olía
- 1 laukur
- 1/2-1 blómkálshöfuð
- 1 paprika
- 3-5 gulrætur
- 70 g tómatpúrra
- 1 dós tómatar
- 2 dósir nýrnabaunir
- 1 dl vatn
- 1 dós kókosmjólk
- 2 tsk karrý
- 2 tsk túrmerik
- 1 grænmetisteningur
- 1/2-1 tsk kanill
- 1 dl saxaðar döðlur
- Salt
Aðferð:
- Skerið grænmetið í hæfilega bita.
- Laukurinn steiktur í olíu í potti. Bætið við tómatpúrru, karrý, túrmerik og kanil og svo grænmetinu. Því næst koma tómatarnir, kókosmjólkin, vatnið og grænmetisteningurinn og í lokin vel skolaðar baunir og döðlur.
- Látið malla í hálftíma eða lengur.
- Berið fram með hrísgrjónum og salati.
