Svartbaunaborgarar með guacamole úr smiðju Halldórs Steinsson matreiðslumeistara á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Uppskriftin er hæfileg fyrir 4-6 borgara. Guacamole eða lárperumauk smellpassar með.
Svartbaunaborgarar:
- 2 dósir svartar baunir eða 480 g soðnar svartar baunir.
- 2 msk ólífuolía
- 1 laukur, saxaður
- 3 hvítlauksrif, pressu
- 1 eða fleiri jalapeño-pipar, fínt saxaður
- 4 msk tómatmauk
- 1 tsk broddkúmen
- 1 tsk chipotle-duft eða 1 tsk reykt paprikuduft + ¼ tsk chiliduft
- 3 msk balsamedik
- 1 stórt egg
- ¾ bolli fetaostur, mulinn
- ½ bolli brauðrasp
- 1 tsk salt
- Svartur pipar eftir smekk
- Smá olía til eldunar
Aðferð:
- Hitið ofn í 180°C. Dreifið svörtu baununum á bökunarplötu og bakið í um 15-20 mínútur. Þetta dregur úr raka í baununum og hjálpar borgurunum að halda betur lögun.
- Hitið ólífuolíu á pönnu. Steikið laukinn í um 3 mínútur. Bætið þá hvítlauk, jalapeño, tómatmauki, broddkúmeni, chipotle-dufti, salti og pipar út á og steikið áfram í um 2 mínútur.
- Setjið helming baunanna ásamt lauk- og kryddblöndunni í matvinnsluvél. Bætið balsamediki, eggi og brauðraspi saman við og púlsið stuttlega. Blandan á að haldast gróf en ekki verða að mauki.
- Setjið blönduna í skál og blandið restinni af baununum og fetaostinum varlega saman við.
- 5. Mótið 4–6 borgara. Ef blandan er of blaut má bæta við örlitlu brauðraspi. Ef hún er of þurr má bæta við smá vatni, balsamediki eða olíu.
- Steikið borgarana á pönnu við meðalhita í 4-5 mínútur. Á grilli er gott að penslana borgarana með olíu og grilla við 200 gráður á hvorri hlið. Í ofni er gott að baka þá við 200 gráður í 20-25 mínútur og snúa þeim einu sinni.
Gaucamole:
- 2 stórar, vel þroskaðar lárperur
- 2 msk ferskur límónusafi
- ½ tsk salt, eða eftir smekk
- 3 msk rauðlaukur, fínt saxaður
- 2 msk ferskt kóríander, fínt saxað
- 1 þroskaður tómatur, fræhreinsaður og smátt saxaður, (valfrjálst)
- ½–1 jalapeño, fræhreinsaður og smátt saxaður, (valfrjálst)
Aðferð:
- Skerið lárperurnar í tvennt, fjarlægið steinana og skafið aldinkjötið úr hýðinu með skeið.
- Setjið lárperurnar í skál ásamt límónusafa og salti. Stappið með gaffli þar til maukið er eins gróft eða mjúkt og þið viljið.
- Bætið rauðlauk og kóríander saman við. Hrærið tómat og jalapeño einnig út í ef það er notað.
- Blandið varlega saman og smakkið til með meira salti eða límónusafa eftir þörfum.
Forsíðumynd: Halldór Steinsson
Mynd að neðan: Pálmi Jónasson

