Eplakaka með hnetum og döðlum sem Solla á Gló deildi með lesendum Náttúrulækningafélagsins. Heimagert marsípan og eplafylling með engum viðbættum sykri. Skreytið að vild með ávöxtum og berjum.
Bökubotn:
- 4 dl kókosflögur
- 3 dl pekanhnetur
- 2 dl döðlur, smátt saxaðar
- 1 dl mórber
- 1 tsk vanilla, duft eða dropar
- 1/8 tsk sjávarsalt
Aðferð:
- Allt sett í matvinnsluvél og maukað saman. Deigið er tilbúið þegar það klístrast saman.
- Skiptið deiginu í fernt. Notið fjögur 10-12 cm bökuform með lausum botni. Þrýstið niður í formin og setjið inn í frysti á meðan verið er að búa til marsipanið. Hægt er að nota eitt 23/26 cm bökuform í staðin fyrir fjögur lítil.
Marsípan:
- 150 g heslihnetur, malaðar fínt
- ¼ tsk salt
- ½ dl agavesýróp
- 1 tsk vanilludropar eða duft
- ½ dl kókosolía eða kakósmjör
- 6-8 möndludropar
Aðferð:
- Setjið allt nema kókosolíu/kakósmjör í matvinnsluvélina og blandið mjög vel saman. Bætið við kókosolíu eða kakósmjöri og klárið að blanda.
- Skiptið marsipaninu í fernt og setjið lag yfir hvern botn.
Eplafylling
- 1 ¼ dl möndlur
- 1 ¼ dl kókosmjöl
- 2 ¼ dl döðlur, smátt saxaðar
- ¾ dl ljósar rúsínur, smátt saxaðar
- 1 tsk kanill
- ¼ tsk allrahanda
- ¼ tsk vanilluduft
- 3-4 epli, rifin á grófu rifjárni (t.d. 2 rauð og 2 græn)
Aðferð:
- Setjið möndlur, kókosmjöl, döðlur, rúsínur, kanil og allra handa í matvinnsluvél og blandið vel saman og setjið í skál.
- Kreistið safann (það þarf virkilega að kreista vel svo fyllingin verði ekki of blaut) vel úr rifnu eplunum og bætið þeim útí skálina og klípið þetta vel saman.
- Skiptið fyllingunni í fernt og setjið ofan á hvern botn.
- Skreytið með mórberjum og eplasneiðum.
Verði ykkur að góðu!
