Bananamúffur úr smiðju Rögnu Ingólfsdóttur. Þessar hollu múffur eru frábærar sem nesti í ferðalagið, hjólreiðatúrinn eða fjallgönguna.
Bananamúffur:
- 200 g hrísmjöl
- 60 g kartöflumjöl
- 30 g maísmjöl
- 2 tsk vínsteinslyftiduft
- 1 tsk kanill
- 1 tsk flögusalt
- 4 stórir vel þroskaðir bananar, stappaðir
- 2 egg
- 1 msk kókosolía (fljótandi)
- 100 ml hrísmjólk
Aðferð:
- Öllu blandað saman og hrært vel. Einnig er hægt að bæta út í deigið sólblómafræjum, kókosmjöli, eða því sem þér finnst gott.
- Síðan er þessu skellt í form og á 190-200 gráður í ofn í 20-25 mínútur.
Mynd: Pixabay
