„Chili sin carne með súkkulaði, guacamole og sýrðum kasjúrjóma,“ úr smiðju Sollu sem löngum var kennd við Gló. Chili sin carne er frábrugðið chili con carne að því leiti að í því er ekkert kjöt. Annað hvort er notuð dós af nýrnabaunum eða 250 grömm af nýrnabaunum sem eru lagðar í bleyti yfir nótt. Síðan er skipt um vatn og þær soðnar í hálfa aðra klukkustund. Þetta geymist í 3-4 daga í loftþéttu íláti í kæli.
Cili sin carne:
- 1 dós nýrnabaunir
- 2 msk olía til steikingar
- 1 rauðlaukur, smátt saxaður
- 4 hvítlauksrif, pressuð
- 2 stk rauður chili pipar, smátt saxaðir
- 500g blandað grænmeti: sætar kartöflur, gulrætur, rauð paprika
- 4 msk tómatpúrra
- 1 dós maukaðir tómatar eða tómatpassata
- 2 smátt saxaðar döðlur
- 2 tsk cumminduft
- ½ tsk reykt paprika eða chipotle pipar
- 1 lárviðarlauf
- 1 kanilstöng
- Sjávarsalt
- 25 g lífrænt 70% dökkt súkkulaði, skorið í litla bita
- 2 msk ferskur kóríander til að strá yfir
Aðferð:
- Hitið olíu í potti og mýkið rauðlauk, hvítlauk og chili pipar í 5 mínúr. Hrærið tómatpúrru útí ásamt maukuðum tómötum, smátt söxuðum döðlum og kryddinu. Látið sjóða í við vægan hita í 25 mín.
- Skerið grænmetið í passlega munnbita og bakið í ofni við 180 – 200 gráður í 20 mínútur. Bætið grænmetinu útí pottinn og leyfið að malla í 10 mínútur. Bætið við súkkulaði og hrærið þar til það hefur bráðnað.
- Stráið yfir ferskum kóríander og berið fram með sýrðum kasjúrjóma og guacamole.
Sýrður kasjúrjómi:
- 1 dl kasjúhnetur, lagðar í bleyti í 2 klukkustundir
- 2 msk kókosmjöl
- 3 msk límónusafi
- 2 msk ólífuolía
- 1-2 msk agavesýróp
- 1 tsk sjávarsalt
Aðferð:
- Hellið vatninu af kasjúhnetunum og setjið allt í blandara eða matvinnsluvél og blandið þar til það verður silkimjúkt.
- Ef þetta er of þykkt má þynna með smá vatni. Passið að setja ekki of mikið vatn því þá verður blandan of þunn.
Cuacamole:
- 2 avókadó, afhýdd og steinninn fjarlægður
- 2 tómatar, skornir í litla teninga
- ½ rauðlaukur, smátt saxaður
- 1 msk fínt saxaður ferskur chili pipar
- 1 msk límónusafi
- 1 hvítlauksrif, pressað
- ¼ tsk salt
- 25 g ferskur kóríander, smátt saxaður
Aðferð:
- Stappið avókadó með gaffli svo það verði að mauki, má hafa svolítið af grófari bitum.
- Setjið í skál með restinni af uppskriftinni, blandið saman og setjið inn í ísskáp í 10-15 mínútur.
Myndir: Pálmi Jónasson og Solla

