Vanilluís með kókosolíu og kasjúhnetum. Birt með leyfi frá Sollu í Gló.
Þú þarft:
- 3 dl kasjúhnetur
- 2,5 dl möndlumjólk
- 3/4 dl agave síróp eða önnur sæta
- 1-2 tsk vanilla, duft eða dropar
- 1/2 dl fljótandi kókosolía
- 1/4 tsk sjávarsalt
Aðferð:
- Leggið kasjúhneturnar í bleyti í 2 klukkustundir.
- Setjið kasjúhnetur, möndlumjólk, síróp og vanillu í blandara og gerið silkimjúkt. Bætið kókosolíunni og saltinu við blandið stutta stund.
- Setjið annað hvort í ísvél eða silkiform og frystið. Hrærið öðru hvoru á meðan blandan frosnar.
