Svartsfuglsegg eru lostæti og með góðum söltuðum osti eru þau tær snilld. Hér með Peccorino Toscano sem ég fékk í ostaborðinu í Hagkaup í Kringlunni. Svartsfuglseggin fékk ég í Melabúðinni. Parmaskinkan er bara þarna af því að ég átti 24 mánaða Serrano skinku.
Þú þarft:
- Svartsfuglsegg
- Peccorino Toscano
- Parmaskinka
Aðferð:
- Sjóðið svartsfugleggin í 7-8 mínútur.
- Skerið svartsfuglseggin í tvennt því skurnin er svo flott á diski.
- Rífið yfir vel af parmesan osti og piprið. Undir þessu má setja Parma skinka ef hún er til í skápnum.
Myndir: Pálmi Jónasson.

