Þetta blómkál er snilld, eitt og sér eða með kjúklingi eða öðru kjöti, fiski eða hrísgrjónum og þá gjarnan með jógúrt og lime á kantinum. Úr smiðja Ottolenghi. Þetta má gera með allt að dags fyrirvara og geyma í ísskáp. Fyrir matarboðið þarf þá bara að setja þetta í ofninn. Verið óhrædd að nota það krydd sem ykkur líkar, ostinn sem til er og þær fersku kryddjurtir sem þið eigið.
Þú þarft:
- 1 stórt blómkálshöfuð
- 30 g ósaltað smjör
- 1 laukur
- 1,5 tsk cummin fræ
- 1 tsk karrý
- 1 tsk sinnepsduft
- 2 grænir chili
- 1 tsk sinnepsfræ
- 200 ml rjómi
- 120 g cheddar ostur
- 15 g fersk brauðmylsna
- 5 g ferskt krydd
Aðferð:
- Skerið blómkálið í blómvendi og gufusjóðið í 5 mínútur.
- Steikið laukinn gullinbrúnan í smjörinu í 8 mínútur. Bætið við cummin fræjum, sinnepsdufti og chili og látið malla í um 4 mínútur. Bætið við sinnepsfræjum og steikið í eina mínútu í viðbót. Hellið rjómanum yfir og 100 grömmum af osti, hálfri teskeið af salti og leyfið að malla í 2-3 mínútur. Blandið blómkálinu við, hrærið vel og setjið í eldfast mót.
- Blandið því sem eftir er af ostinum við brauðmylsnu og þær fersku kryddjurtir sem fyrir valinu verða og dreifið yfir blómkálið
- Bakið við 180 gráður í 8 mínútur og undir grilli í um 4 mínútur. Setjið ferskar kryddjurtir og skreytið með sítrónu eða einhverju sem gefur lífinu lit. Berið fram eftir 5 mínútur svo enginn brenni sig.
Myndir: Áslaug Pálmadóttir og Pálmi Jónasson.

