Nýr fjögurra ára þjónustusamningur við Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins var undirritaður í gær. Þórir Haraldsson, forstjóri Heilsustofnunar NLFÍ, fagnar samningnum. „Þessi samningur er mikilvæg viðurkenning á því starfi sem unnið hefur verið hjá Heilsustofnun NLFÍ í áratugi. Hann veitir okkur fyrirsjáanleika og gerir okkur kleift að halda áfram að þróa þjónustuna, byggja á þeirri þekkingu sem hefur skapast og veita einstaklingum heildstæða endurhæfingu sem tekur mið af þörfum hvers og eins. Þannig getur okkar frábæra starfsfólk áfram sinnt endurhæfingu um 1.350 einstaklinga á ári og þannig bætt líðan og lífsgæði þeirra.”
Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga, segir samninginn mikilvægan fyrir bæði einstaklinga og heilbrigðiskerfið: „Endurhæfing skiptir miklu máli fyrir lífsgæði fólks og getur dregið úr þörf fyrir frekari heilbrigðisþjónustu síðar. Með langtímasamningi skapast betri fyrirsjáanleiki fyrir rekstur þjónustunnar og jafnframt svigrúm til að þróa greiðslufyrirkomulag og efla gæði og árangur meðferðar.“
Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, segir að endurhæfing sé lykilþáttur í öflugu heilbrigðiskerfi. „Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins hefur um áratugaskeið gegnt mikilvægu hlutverki í endurhæfingu hér á landi. Með þessum langtímasamningi skapast aukinn stöðugleiki sem gerir stofnuninni kleift að þróa þjónustuna áfram og tryggja að einstaklingar um land allt hafi aðgang að öflugri og sérhæfðri endurhæfingu.“
Í gær var undirritaður nýr fjögurra ára þjónustusamningur við Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Samningurinn gildir frá 1. janúar 2026 til 31. desember 2029. „Samningurinn markar mikilvægt skref í að efla stöðugleika og fyrirsjáanleika í þjónustu við einstaklinga sem þurfa á sérhæfðri endurhæfingu að halda,“ segir í fréttatilkynningu heilbrigðisráðuneytisins. „Hámarksfjárhæð samningsins nemur tæpum 1,5 milljörðum króna á ári. Með samningnum er tryggður traustur grunnur fyrir áframhaldandi uppbyggingu þjónustunnar en síðasti samningur var gerður árið 2019.“
Gunnlaugur K. Jónsson forseti Náttúrulækningafélagsins, Alma Möller heilbrigðisráðherra, Þórir Haraldsson forstjóri Heilsustofnunar NLFÍ og Sigurður H. Helgason forstjóri Sjúkratrygginga Íslands undirrituðu samninginn formlega í Matstofu Jónasar á Heilsustofnun. Samningurinn gildir til ársloka 2029.
Heilsustofnun hefur verið frumkvöðull í áratugi og mikilvægur hlekkur í íslensku heilbrigðiskerfi. „Heilsustofnun NLFÍ hefur í áratugi gegnt mikilvægu hlutverki í íslensku heilbrigðiskerfi og er leiðandi á sviði endurhæfingar. Stofnunin hefur verið frumkvöðull í þróun þverfaglegrar endurhæfingar og mats á árangri meðferða og hefur byggt upp öfluga þekkingu og reynslu sem nýtist einstaklingum víðs vegar að af landinu. Náttúrulækningafélag Íslands hefur frá upphafi verið bakhjarl starfseminnar og átt stóran þátt í uppbyggingu hennar.“
„Við erum mjög ánægð með nýjan samning sem tryggir starfsemi Heilsustofnunar til næstu þriggja ára eða til ársloka 2029 og áframhald þeirrar mikilvægu endurhæfingar sem hér fer fram,“ segir Þórir Haraldsson forstjóri Heilsustofnunar NLFÍ í bréfi til starfsmanna. „Við munum áfram sinna endurhæfingu um 1.350 einstaklinga á ári og sá góði árangur sem við höfum náð fær viðurkenningu með talsvert auknum fjármunum. Þannig er tryggt að sjúklingar munu áfram fá faglega endurhæfingu hjá þeim frábæra hópi starfsfólks sem vinnur á Heilsustofnun að því að bæta líðan og lífsgæði sjúklinga.“
Myndir: Dagný Dögg Steinþórsdóttir

Sigurður H. Helgason forstjóri Sjúkratrygginga Íslands með ævisögu Jónasar Kristjánssonar læknis og stofnanda Náttúrulækningafélagsins.

Ingi Þór Jónsson markaðsstjóri Heilsustofnunar, Alma Möller heilbrigðisráðherra og Þórir Haraldsson forstjóri Heilsustofnunar.

Þórir Haraldsson forstjóri Heilsustofnunar og Alma Möller heilbrigðisráðherra.

Starfsfólk Heilsustofnunar Nátttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Starfsmenn Heilsustofnunar Nátttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Ingi Þór Jónsson markaðsstjóri, Brynjar Þórsson framkvæmdastjóri rekstrar, Þórir Haraldsson forstjóri, Margrét Grímsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar og Aldís Eyjólfsdóttir mannauðsstjóri.

Alma Möller heilbrigðisráðherra og Þórir Haraldsson forstjóri Heilsustofnunar.

Gunnlaugur K. Jónsson forseti Náttúrulækningafélagsins, Alma Möller heilbrigðisráðherra, Þórir Haraldsson forstjóri Heilsustofnunar, Sigurður H. Helgason forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og Magnús Hlynur Hreiðarsson fréttamaður.

Gunnlaugur K. Jónsson forseti Náttúrulækningafélagsins, Alma Möller heilbrigðisráðherra, Þórir Haraldsson forstjóri Heilsustofnunar og Sigurður H. Helgason forstjóri Sjúkratrygginga Íslands.

Sigurður H. Helgason forstjóri Sjúkratrygginga Íslands.
