Þetta gómsæta döðlubrauð frá Gosiu Madej er einstaklega bragðgott. Það er afar einfalt að búa til og hentar við flest tækifæri. Brauðið er næringarríkt, inniheldur hvorki hvítan sykur né hvítt hveiti.
Döðlubrauð:
- 750 g spelt
- 190 g sesamfræ
- 90 g graskerfræ
- 100 g möndlumjöl
- 2 msk vinsteinslyftiduft
- 120 g hunang
- 120 g hakkaðar döðlur
- 400 ml vatn
- 1 tsk salt
Aðferð:
- Hitið ofninn í 175 gráður.
- Öllu blandað saman í smurt brauðform. Bakið í 45 mínútur.
Verði ykkur að góðu!
