Það er nauðsynlegt að við veltum því fyrir okkur í dag hvers vegna við erum að leita læknis og nýta okkur heilbrigðiskerfið. Mikið af þeim „sjúkdómum” sem eru að hrjá okkur í dag eru lífsstílssjúkdómar og fylgikvillar þeirra s.s. sykursýki, offita, hjarta- og æðasjúkdómar, ýmis krabbamein, þunglyndi og stoðkerfisvandamál.
Jónas Kristjánsson stofnandi Náttúrulækningafélagsins skrifaði í ritið Heilsuvernd árið 1947 (2.árg, 1.hefti) “ Vér eigum ekki í höggi við sjúkdóma, heldur við rangar lífsvenjur. Útrýmið hinum röngu lífsvenjum, og sjúkdómarnir munu hverfa af sjálfu sér.” Í sömu grein heldur hann áfram að lesa okkur pistilinn.“Heilsuleysi menningarþjóða og vaxandi hrörnun er engin tilviljun, heldur beinar afleiðingar rangra lifnaðarhátta, rangrar, ónáttúrulegrar og dauðrar fæðu, of lítillar hreyfingar og útilokunar frá hreinu lofti og sól. Allt er þetta í andstöðu við lögmál lífsins og náttúrunnar.”
Við verðum að fara að spyrja okkur spurninga um það hvernig við getum snúið við þessari þróun. Hvar liggur okkar ábyrgð í þessum lífsstílssjúkdómum? Hafa markaðsöfl óholla skyndibitans og tilbúna matarins í búðinni náð yfirhöndinni í okkar neysluvenjum? Komumst við ekki út úr vítahring óhollrar fæðu eða er framboðið ekki nógu gott af góðri og næringarríkri fæðu sem styrkir okkur í stað þess að veikja okkur? Er framboðið á afþreyingarefni í sjónvarpi og tölvum orðið þvílíkt að við komust hreinlega ekki uppúr sófanum? Þegar við förum á bílnum út í búð sem er 500 metra í burtu, notum aldrei stiga eða aðra nauðsynlega hreyfingu þegar hún býðst, er okkur kannski ekki viðbjargandi.
Tökum eftir því að orð Jónasar Kristjánssonar voru skrifaður fyrir 80 árum! Þá voru alls engar tölvur, bílar voru ekki allra, búðarhillur voru ekki uppfullar af gervimat, sykraðir gosdrykkir voru ekki seldir í 2 lítra kippum, skyndibitastaðir þekktust varla á Íslandi og sjónvarpið var ekki komið í loftið.
Einkunnarorð Náttúrulækningafélags Íslands og Heilsustofnunar Náttúrulækningafélagsins standa enn fyrir sínu.
”Berum ábyrgð á eigin heilsu”
