Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga er í dag, 10. september. Markmiðið er að stuðla að forvörnum sjálfsvíga og minnast þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi. Á heimasíðu Alþjóðadags sjálfsvígsforvarna eru allir hvattir til að kveikja á kerti og setja út í glugga klukkan 20:00 í kvöld. Er það gert til að minnast þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi, að tendra ljós til þeirra sem á þurfa að halda og til stuðnings forvörnum gegn sjálfsvígum.
Á heimasíðu Rauða krossins segir að forvarnir séu mikilvægar til að koma í veg fyrir sjálfsvíg. „Í aðdraganda dagsins verður hugtakið stuðningur í kjölfar sjálfsvígs „postvention“ sérstaklega kynnt en hugtakið er nú samþykkt af Alþjóðaheilbrigðismálastofnunni sem mikilvægur liður í sjálfsvígsforvörnum.
Í dag er því viðurkennt að bæði forvarnir sjálfsvíga þ.e sem miða að því að koma í veg fyrir sjálfsvíg og stuðningur við aðstandendur og fyrirbyggja þeirra heilsutjón eru samtvinnaðir mikilvægir þættir í sjálfsvígsforvörnum.
Að dagskrá 10. september standa fulltrúar frá: Embætti landlæknis, Geðhjálp, Geðsviði Landspítala, Heilsugæslunni, Minningarsjóði Orra Ómarssonar, Píeta-samtökunum, Rauða krossinum, Sorgarmiðstöð og Þjóðkirkjunni.“
Mynd: Goran Horvat Pixabay
