Nú eru margir búnir iað reima á sig hlaupaskóna og eru að nýta sumarið til að koma sér í gott hlaupaform. Til að ná sínum markmiðum í hlaupunum er mikilvægt að huga líka að næringunni. Í stað þess að treysta á kaup á dýrum íþrótta- eða orkudrykkjum er um að gera að útbúa frekar eigin endurnærandi drykk. Oft er mikið af þeim íþróttadrykkjum sem seldir eru í búðum stútfullir af aukaefnum s.s. litarefnum eða sætuefnum sem eru síður en svo góð fyrir árangur og endurheimt.
Uppskrift:
1 ½ kíwi
2 epli
½ banani
2-3 cm af engiferrót
200 ml vatn
3-4 ísmolar
Aðferð:
Afhýðið ávextina, skerið í bita og blandið í blandara ásamt ísmolunum og vatninu í 30-40 sekúndur. Engiferrótin er sett í safapressu og safinn svo blandaður við drykkinn og blandað í um 10-15 sekúndur.
Næring:
Þessi drykkur er m.a mjög ríkur af B- og C-vítamínum, trefjum, kalíum og gingeróli.
Steinefnið kalíum í banönum er þekkt fyrir að vinna gegn sindrætti og vöðvakrömpum sem hlauparar upplifa oft í löngum hlaupum.
Kíwíð er mjög C-vítamínríkt. Líkaminn þarf aukið C-vítamín þegar hann er undir miklu álagi og er C-vítamín öflug andoxunarefni.
Virkasta efnið í engiferrótinni er gingeról en það hefur sýnt sig hafa bólguhemjandi áhrif í líkamanum, en það kemur sér einstaklega vel fyrir hlaupara undir miklu álagi.
Best er að fá sér þennan drykk strax að lokinni góðri hlaupaæfingu til að endurnæra sig vel eftir hlaupin. Einnig má fá sér helminginn fyrir hlaup og svo hinn helminginn eftir hlaup.
Skrifað af Geir Gunnari Markússyni, ritstjóra NLFÍ ritstjori@nlfi.is