Humarpylslur og rækjupylsur eru sáraeinfaldir réttir en vekja alltaf lukku. Sósan er nánast sú sama í báðum tilfellum en rækjupylsan verður meira í ætt við hefðbundið smurbrauð með rækjum en humarinn heldur kraftmeiri. Meðlætið er ekki síst til skrauts. Hér voru notaðar sprettur, tómatar, graslaukur og egg. Uppskriftin miðast við tvo. Ein rækjupylsa og ein humarpylsa á hvorn disk.
Sósan
- 1 dós sýrður rjómi
- 2 msk japanskt majónes
- 1 sítróna, börkurinn og tæplega helmingur safans
- Dill
- Salt og pipar
- 1 hvítlauksrif (bara á humarhlutann)
Aðferð:
- Blandið öllu nema hvítlauknum í skál.
- Blandið helmingnum saman við rækjurnar.
- Bætið pressuðum hvítlauk og meiri pipar við hinn helminginn og notið með humrinum.
Pylsurnar
- 4 pylsubrauð
- 250 g humar
- 250 g rækjur
- 1 harðsoðið egg
- Sprettur
- Graslaukur
- Tómatar
- Salt og pipar
Aðferð:
- Smyrjið pylsubrauðin með smjöri og steikið þau fallega brún á pönnu eða í ofni.
- Það er lykilatriði að þerra humarinn mjög vel fyrir steikingu, jafnvel að sigta humarinn með hveiti. Hann er svo steiktur á pönnu. Setjið sósu og humar í tvö pylsubrauð og skreytið að vild.
- Setjið rækjusalatið og skorið eggið í tvö pylsubrauð og skreytið að vild.
Myndir: Pálmi Jónasson

