„Endurhæfing er einn af hornsteinum heilbrigðisþjónustu og það er þannig að við þurfum auðvitað að nýta okkar fjármuni með bestum hætti þannig að virðið verði sem mest og við náum sem mestum árangri fyrir þá ármuni sem við höfum úr að spila. Við verðum að fá sem mesta heilsu fyrir peningana. Þar vitum við að endurhæfing skilar miklu virði,“ segir Alma Möller heilbrigðisráðherra í Heimildinni.
Alma segir í Heimildinni að sóknarfæri séu í því í heilbrigðiskerfinu að opinberir aðilar, einkaaðilar og mismunandi þjónustustig stilli betur saman strengi sína. Óljós mörk séu á milli mismunandi tegunda endurhæfingar sem eiga heima hjá sitt hvoru ráðuneytinu. Dæmi séu um að ungt fólk í endurhæfingu hafi ekki fengið þá þjónustu sem það vildi og að styrkja þurfi endurhæfingu barna.
