„Það getur verið erfitt að skipta um gír og kveðja löngun í sætindi og sukk,“ segir Solla á Gló. „Þá virkar oft vel að taka fyrstu dagana með trukki. Mér finnst gott að taka tvo daga á léttu mataræði þar sem ég fæ mér grænmetisdjúsa, sjeika, salöt og súpur. Þá ná bragðlaukarnir yfirleitt að núllstilla sig og eru tilbúnir í hollu hversdagsrútínuna aftur. Hér er hugmynd að tveggja daga léttum matseðli. Munið bara að drekka nóg af vatni og góðu jurtatei yfir daginn.“
Dagur 1:
Grænn djús:
- 2 sellerístilkar
- 1/2 gúrka
- 1/2 afhýdd límóna
- 2-3 cm biti ferskt engifer
- 1-2 dl. vatn
Aðferð:
- Allt skorið í bita og sett í blandara. Hellt í gegnum síupoka eða nælonsokk.
Morgunsjeik:
- 2 dl möndlumjólk
- 1 banani
- 2 dl frosin bláber
- 1 msk grænt duft (t.d. þurrkað hveitigras, chlorella eða hampprótein) 2 stórar, vel þroskaðar lárperur
- 2 msk ferskur límónusafi
- ½ tsk salt, eða eftir smekk
- 3 msk rauðlaukur, fínt saxaður
- 2 msk ferskt kóríander, fínt saxað
- 1 þroskaður tómatur, fræhreinsaður og smátt saxaður, (valfrjálst)
- ½–1 jalapeño, fræhreinsaður og smátt saxaður, (valfrjálst)
Aðferð:
- Möndlumjólk er hægt að gera með því að blanda saman hálfum desilítra af möndlum og tveimur desilítrum af vatn og sigta. Grænt duft getur verið þurrkað hveitigras, chlorella eða hampprótein.
- Allt sett í blandara og blandað saman.
Hádegissalat:
- 2 sellerístilkar
- 1/2 gúrka
- 1/2 afhýdd límóna
- 2-3 cm biti ferskt engifer
- 1-2 dl. vatn
Marínering:
- 1/2 dl jómfrúarólífuolía
- 2-3 msk sítrónusafi
- 1 msk sinnep
- 1 msk. tamarisósa
Aðferð:
- Blandið öllu saman sem fer í marineringuna.
- Skolið og rífið eða skerið kálið og setjið í skál. Skerið kirsuberjatómatana í tvennt og bætið við. Sneiðið vorlaukinn í þunna skástrimla og bætið út í. Skerið avókadó í bita og setjið saman við.
- Skerið spergilkál og gulrætur í passlega stóra bita og setjið í sér skál. Hellið maríneringunni yfir spergilkál og gulrætur og látið standa í 10-15 mínútur. Hellið spergilkálsblöndunni út í salatskálina og blandið öllu saman.
Millimálasnakk:
- Epli
- Gúrka
- Gulrót
- Mandarína
Aðferð:
- Veldu eitt af ofantöldu og skerðu í hæfilega bita.
Kvöldverður:
- 250 g rauðar linsubaunir
- 1,2 lítrar vatn
- 1 rauðlaukur, smátt saxaður
- 1 msk kókosolía eða önnur olía
- 100 g hvítkál
- 25 g ferskur kóríander, smátt saxaður
- 1 tsk cumin duft
- 1/2 tsk kanill
- 3 msk. ólífuolía eða kaldpressuð kókosolía
- 1 1/2 tsk kóríanderfræ
- 2 hvítlauksrif
Aðferð:
- Skolið linsubaunirnar, setjið þær í pott með vatni og látið sjóða í 25-35 mínútur.
- Mýkið laukinn á pönnu í olíunni í 3-4 mínútur. Skerið hvítkálið í þunna strimla og setjið út á pönnuna með lauknum og látið mýkjast í 1-2 mínútur. Setjið hann síðan út í pottinn ásamt ferskum kóríander, cumin og kanil og látið malla í 5 mínútur.
- Hitið 3 msk olíu á pönnu. Merjið saman kóríanderfræ og hvítlauk og steikið í 1-2 mínútur í olíunni. Hellið út á súpuna, hrærið í og berið fram.
Dagur 2:
Grænn djús:
- 2 sellerístilkar
- 1/2 gúrka
- 1/2 afhýdd límóna
- 2-3 cm biti ferskt engifer
- 1-2 dl. vatn
Aðferð:
- Allt skorið í bita og sett í blandara. Hellt í gegnum síupoka eða nælonsokk.
Morgunsjeik:
- 2 dl kókosvatn
- 1 hnefi spínat
- 2 msk goji-ber
- 1 msk grænt duft
- 1/2 avókadó, skorið í bita
Aðferð:
- Grænt duft getur verið þurrkað hveitigras, chlorella eða hampprótein.
- Allt sett í blandara og blandað saman.
Hádegissalat:
- 2 dl soðnar kjúklingabaunir
- Örlítið af tamari-sósu
- 1/2 brokkólíhöfuð, skorið í lítil blóm
- 50 g ferskt spínat eða stór hnefi grænt salat
- 1/2 gúrka, skorin í bita
- 50 g möndlur eða heslihnetur
- 1 vorlaukur
- Nokkrir sólþurrkaðir tómatar
- 10 grænar ólífur
- Nokkur kapersber, ef vill
- 2 msk góð kaldpressuð olía
- 2 msk ferskur sítrónusafi
- 2 msk ferskur appelsínusafi
- Hnefi af fersku kryddi, t.d. sítrónumelissu
- Örlítið sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
- Tamari-sósa
- Timían
Aðferð:
- Ef þið notið þurrkaðar baunir þá leggið þið þær í bleyti yfir nótt, skiptið síðan um vatn og sjóðið þær gjarnan með smá stórþarastrimli (kombu) í um 1 klukkustund eða þar til hægt er að kremja þær milli fingra sér.
- Setjið brokkólí út í sjóðandi vatn í um 1 mínútu eða hendið því aðeins a wokpönnu með smávegis af tamari-sósu.
- Setjið spínat og klettasalat í skál. Skerið gúrkuna í tvennt, skafið kjarnann innan úr henni með teskeið. Skerið hana aftur í tvennt eftir endilöngu og síðan í um 5 cm langa bita og setjið út í salatskálina. Skerið vorlaukinn í þunnar sneiðar og setjið saman við salatið, ásamt hnetum, sólþurrkuðum tómötum, ólífum og kapersberjum.
- Hrærið saman sítrónusafa, appelsínusafa, sítrónumelissu, timíani og örlitlu salti og pipar og hellið yfir salatið.
Millimálasnakk:
- Epli
- Gúrka
- Gulrót
- Mandarína
Aðferð:
- Veldu eitt af ofantöldu og skerðu í hæfilega bita.
Kvöldverður:
- 1 rauð paprika, skorin í tvennt, steinhreinsuð og skorin í litla bita
- 1/2 gúrka, skorin í litla bita
- 1/2 kúrbítur, skorinn í litla bita
- 2 vorlaukar
- 2 msk steinselja
- 2 msk ferskur kóríander
- 1 hvítlauksrif
- 2 cm bútur engiferrót
- Safi úr 1/2 límónu
- 1-2 dl vatn (eftir því hvað þið viljið hafa súpuna þykka)
- 2 msk kaldpressuð ólífuolía
- 1 tsk ljóst miso eða currypaste
- Smá salt eða tamarisósa
Aðferð:
- Byrjið á að setja papriku, gúrku og smá vatn í blandara. Bætið síðan einni og einni tegund af hráefnislistanum í einu út í svo að auðvelt sé fyrir blandarann að mauka grænmetið.
- Blandið þar til allt er orðið silkimjúkt.
