Uppskrift af gómsætum fiskrétti frá Rögnu Ingólfsdóttur. Upprunalegu uppskriftina er að finna í bókinni „Af bestu lyst“. Þessi er með hýðisgrjónum sem innihalda trefjar og næringarefni. Passlegt fyrir fjóra.
Þú þarft:
- 700 g þorskur
- Rautt pestó
- salt og pipar
- ½ -1 tsk cayenne pipar
- 1 msk jómfrúar ólífuolía
- 1 rauð paprika
- ½ kúrbítur
- 250 gr konfekt tómatar
- 50 gr fetaostur
- smá brokkolí
- 1 dl hrísgrjón
- 1 tsk túrmerik
Aðferð:
- Sjóðið hrísgrjón og stráið túrmerik yfir þau þegar að þau eru tilbúin.
- Hitið ofninn í 180 gráður. Skerið þorskinn niður í löng stykki og kryddið með salti og pipar.
- Setjið pestó á fiskstykkin og brjótið hann saman. Látið fiskinn í olíuborið eldfast mót.
- Skerið grænmetið og dreifið því á milli fiskstykkjanna. Dreifið feta ostinum yfir og kryddið með salti og cayenne pipar.
- Bakið þorskinn í 20 mínútur eða þar til hann er eldaður í gegn og grænmetið orðið meyrt.
