Þessi einfalda uppskrift frá skemmtilega matarblogginu Cafe Sigrun er æðisleg sumarmáltíð, tilvalin fyrir göngugarpa. Frábær máltíð sem maður myndi ekki einu sinni vera óánægður með á fínasta veitingahúsi en úti í náttúrunni, uppi á fjalli, með fallegt útsýni, við sætan læk, í góðu veðri, er bara ekkert betra!
Hvort að súpan er glúteinlaus, gerlaus og mjólkurlaus fer eftir því hvernig súpur þið kaupið sem grunn.
Útilegusveppasúpa með fjallagrösum
Fyrir 2 svanga göngugarpa
Innihald
- 2 pakkar sveppasúpa, úr heilsubúð
- 1 lítri kalt vatn
- 10 g þurrkaðir sveppir
- Hálf lúka fjallagrös (má sleppa)
- 100-150 g hrísgrjónanúðlur
- Smá klípa salt, pipar og múskat (enska: nutmeg)
Aðferð
- Áður en lagt er af stað í ferðina skuluð þið blanda saman súpuduftinu, þurrkuðum sveppum, salti, pipar og múskati í plastpoka. Geymið leiðbeiningarnar að súpunni ef þið þurfið. Hafið hrísgrjónanúðlurnar í sér poka.
- Í áningarstað skuluð þið sjóða súpuna samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum. Hrærið mjög vel.
- Skolið fjallagrösin eða dustið af þeim og tætið aðeins niður.
- Þegar súpan er byrjuð að sjóða, setjið þá fjallagrösin og hrísgrjónanúðlurnar út í og láta malla í 5 mínútur eða svo.
- Berið fram strax.
- Gott er að grilla chapati brauð eða glúteinlausa brauðvasa með súpunni. Best er að grilla brauðið áður en súpan er elduð og pakka svo inn í álpappír. Gætið þess samt að eiga nægilegt gas fyrir súpuna og allt annað sem þið ætlið að elda!
Gott að hafa í huga
- Það má endalaust setja meira af góðgæti ofan í súpuna. Gott er að blanda saman þurrkuðum paprikubitum, þurrkuðum maískornum o.s.frv. í súpuna. Fyrir kjötæturnar má saxa kjöt sem búið er að matreiða og taka með sér í ferðalagið (borða fyrsta daginn). Það má undirbúa súpugrunninn á áningarstað og kjötæturnar geta sett kjötið út í þegar grænmetisæturnar eru búnar að fá sér á sinn disk
Verði ykkur að góðu!