Bakaðar rauðrófur með piparrót og kasjúhnetudressingu er dásamlegt meðlæti úr smiðju Halldórs Steinsson yfirmatreiðslumeistara á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Hér er gert ráð fyrir að rauðrófan sé stór en annars þarf 2-3 litlar.
Rauðrófur
- 1 rauðrófa
- Þumall af piparrót
Aðferð:
- Bakið rauðrófuna heila í ofni við 170 gráður í 40-60 mínútur eftir stærð.
- Takið hýðið af þegar þær hafa kólna og skerið hana í hæfilega bita.
Kasjúhnetudressing
- 250 g kasjúhnetur
- Ólífuolía
- Safi úr hálfri sítrónu
- Ferskt krydd
- 2 hvítlauksgeirar
- Salt
Aðferð:
- Ristið hneturnar í ofni.
- Notið það ferska krydd sem þið eigið eða líkar, t.d. kóríander, steinselju eða basil. Setjið hnetur í blandara með olíu þannig að fljóti yfir. Bætið hinum innihaldsefnunum við og vinnið þetta vel saman.
- Hellið þessu yfir rauðrófuna og rífið piparrótina yfir.
Mynd: Halldór Steinsson
