Guðríður Helgdóttir, betur þekkt sem Gurrý deildi þessari einföldu en góðu uppskrift með okkur. Gurrý er menntaður garðyrkjufræðingur og var með þætti á RÚV í vetur undir heitinu; Í garðinum með Gurrý.
Gurrý hefur einnig haldið matreiðslunámskeið á vegum NLFÍ.
Uppskrift
Ýmiss konar rótargrænmeti (kartöflur, sætar kartöflur, gulrætur, steinseljurót, sellerírót, rófur) skorið niður í teninga. Stærð teninganna hefur áhrif á eldunartímann þannig að ef tími er af skornum skammti er sniðugt að hafa teningana frekar smáa.
Rauðlaukur og/eða matlaukur skorinn niður í meðalstóra bita, eins má nota hvítlauk með, jafnvel blómkál og spergilkál. Grænmetið sett í eldfast mót. Kryddað með salti, rósmaríni og timían, jafnvel pipar ef vill. Matarolíu hellt yfir (t.d. Isio 4 olíu), ca ½ dl í stórt eldfast mót. Hlynsýrópi hellt yfir (ca ½ dl).
Bakað í ofni við ca 180°C í 30-45 mínútur, eftir stærð bitanna. Má alveg vera aðeins fast undir tönn þegar þetta er tilbúið
Frábært meðlæti með sunnudagssteikinni og hæglega hægt að undirbúa daginn áður.