Halldór Steinsson yfirmatreiðslumaður á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði bjó til þessa girnilegu uppskrift af bökuðu blómkáli með gremolata. Þetta gremolata er frábært á brauð eða sem meðlæti með fiski.
Þú þarft:
- 1 blómkál
- 3 msk ólífuolía
- 2 msk mjúkt smjör
- 1 tsk salt
- 1/2 tsk pipar
- 1 tsk paprikuduft
- 1-2 msk sítrónusafi
Aðferð:
- Hitið ofninn í 180 gráður. Fjarlægið ytri laufin og skerið stilkinn þannig að blómkálið standi stöðugt.
- Blandið öllum öðrum hráefnum saman og smyrjið á blómkálið. Bakið í 40-60 mínútur eða þar til blómkálið er gullbrúnt að utan og mjúkt í gegn. Hnífur á að renna auðveldlega í gegnum blómkálið.
Gremolata:
- 100 g valhnetur
- Hnefafylli steinselja
- Hnefafylli kóríander
- 1-2 hvítlauksgeirar
- 2 msk rauðvínsedik
- 120 ml ólífuolía
- 1 sítróna, börkur og safi
- Salt og pipar
Aðferð:
- Ristið eða bakið hneturnar og saxið krydd og hvítlauk.
- Öllu blandað saman og smakkað til með salti og pipar.
- Setjið gremolata á blómkálið áður en það er borið fram.
Mynd: Halldór Steinsson
