Sykurbaunasalat með lárperum úr smiðju Halldórs Steinsson á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Sykurbaunir eru einstaklega ríkar af C-vítamíni, B-vítamíni, K-vítamíni og járni. Lárperan er frábær fitugjafi (rík af einómettuðum fitutsýrum) og trefjum. Sumac er mikið notað í Líbanon, Ísrael, Palestínu og Tyrklandi en einnig við Miðjarðarhafið og Norður Afríku.
Salat:
- 1 pakki sykurbaunir, skornar í litla bita
- 2 gúrkur skornar í litla bita
- 4 radísur í litlum bitum
- 1 shallot laukur fínsaxaður
- Handfylli saxaður ferskur basil
- Handfylli söxuð steinselja
- 1 chili fræhreinsaður og fínsaxaður
- 1 lárpera í teningum
Aðferð:
- Öllu blandað saman.
Dressing:
- 1 tsk sjávarsalt
- 1 tsk sumac
- Safi úr ½ sítrónu
- Safi úr ½ límónu
- 3 msk ólífuolía
Aðferð:
- Öllu blandað saman.
