Hin árlega grasaferð NLFR í þágu Heilsustofnunar fór fram á þriðjudaginn s.l. í blíðskaparveðri. Fjöldi manns var mættur til að tína jurtir í te Heilsustofnunar undir styrkri stjórn Jónasar V. Grétarssonar garðyrkjustjóra Heilsustofnunar.
Í ár var tínt blóðberg og gulmaðra, þekktar lækningajurtir á Íslandi og góðar í te. Björn Halldórsson prestur í Sauðlauksdal sem var frumkvöðull í garðrækt og jarðyrkju á Íslandi, sagði um blóðbergið: „Seyði af þessari urt, sem te drukkið, er gott við hósta, læknar ölsýki þeirra manna, að morgni drukkið, sem ofdrukkið höfðu vín að kvöldi. Sé þessari urt stráð á gólf, eða reykt með henni í húsum, ellegar hún seydd í vatni og sama vatni dreift um húsið, flýja þaðan flær“.
Jurtirnar voru tíndar í göngufæri við Heilsustofnun og voru heimtur góðar. Að tínslu lokinn var boðið upp á veitingar í Matstofu Jónasar
Hópnum bauðst svo frír aðgangur að baðhúsi Heilsustofnunar að lokinni ferðinni. NLFR og Heislustofnun þakkar kærlega öllum sem tóku þátt í þessari vel heppnuðu grasfserð.
Hér má sjá myndir úr ferðinni.