Heilsuremúlaði er að finna í heilsuppskriftabæklingi Heilsustofnunar Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði. Þetta remúlaði er frábært með fiski í raspi, með smurbrauði eða sem ídýfa með niðurskornu grænmeti.
Þú þarft:
- 500 g skyr
- 200 ml AB mjólk
- 4 msk sætt sinnep
- 4-5 smátt skornar súrar gúrkur
- 4-5 msk saxað kapers
- 1 smátt skorinn laukur
- 1 söxuð rauð paprika
- Fersk dill
- Sítrónusafi
- Salt og pipar
Aðferð:
- Öllu blandað saman og smakkað til með salti og pipar.
