Það er engin heilsa án geðheilsu og sérstaklega nú á síðstu og verstu tímum og sést það vel í aukinni kulnun, þunglyndi og ýmsum öðrum geðsjúkdómum.
Í tilefni af alþjóðlega geðheilbrigðisdeginum 10.október efnir Geðhjálp og Geðverndarfélag Íslands til opins málþings undir heitinu „Dulin áhrif erfiðrar reynslu í æsku á heilsufar á fullorðinsárum“.
Málþingið fer fram í fyrirlestrarsal Íslenskrar Erfðagreiningar við Sturlugötu 8.
Fundarstjóri er Kjartan Valgarðsson, framkvæmdastjóri Geðverndarfélags Íslands.
Dagskrá málþingsins:
19.30 – 19.40 Opnunarávarp
Gunnlaug Thorlacius, formaður Geðverndarfélags Íslands.
19.40 – 20.45 Áhrif erfiðrar reynslu í æsku á heilsu á fullorðinsárum, kostnaður og forvarnir.
Pr. Mark Bellis, stjórnandi rannsókna við Lýðheilsustofnanir Wales og Stóra Bretlands og stjórnarformaður miðstöðvar forvarna gegn ofbeldi hjá Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni WHO.
20.45 – 21.05 Heilsa fullorðinna í ljósi erfiðrar æsku.
Margrét Ólafía Tómasdóttir, dr. í heilsugæslulækningum og lektor við Háskóla Íslands.
21.05 – 21.20 Fjallabaksleið til nýs lífs
Sara Elísa Þórðardóttir varaþingmaður.
21.20 – 21.35 Fræðsluátak Geðhjálpar um afleiðingar erfiðrar reynslu í æsku á heilsu á fullorðinsárum.
Hrannar Jónsson, formaður Geðhjálpar.
21.35 – 21.45 Samantekt og umræður.
Aðgangur ókeypis