Hollt og gott ávaxtasalat með banönum og epli. Verið óhrædd að skipta út ávöxtum eða öðrum innihaldsefnum.
Þúr þarft:
- 4 græn epli
- 4 bananar
- 100 g dökkt súkkulaði
- hesilhnetur
- 1 dl sýrður rjómi
- 1 rjómapeli
Aðferð:
- Afhýðið eplin og skerið í bita. Sneiðið banana og setjið í skál. Blandið við ávexti, súkkulaði og hökkuðum hnetum.
- Þeytið rjóma og blandið við sýrða rjómann. Blandið þessu við ávextina. Kælið.
