Plokkfiskur er minn skyndibiti. Ég kaupi tilbúinn plokkfisk og bæti við vel af smjöri og sinnepi og strái osti yfir herlegheitin. Gott að setja basil í lokin. Plokkfiskur er mjög misþykkur og því erfitt að gefa upp magntölur en um tvö kíló af plokkfiski er passlegt fyrir sex. Ekki spara smjör, sinnep eða ost.
Þú þarft:
- Plokkfiskur
- Smjör
- Sinnep
- Ostur
- Basilíka
- Salt og pipar
Aðferð:
- Bræðið saman vel af smjöri og sinnepi og blandið við plokkfiskinn. Setjið í eldfast fat og vel af osti yfir. Bakið fallega brúnt í ofni við 200 gráður eða jafnvel rúmlega það. Stráið basilíku yfir í lokin.
Myndir: Pálmi Jónasson

