Þessi orkudrykkur er hlaðinn efnum sem nýtast vel í öllum íþróttum. Þessi drykkur er m.a mjög ríkur af próteini, B- og C-vítamínum, trefjum, kalíum, kalki og gingeróli. Skyr og jógúrt eru mjög próteinrík og gott í endurheimt á slöppum vöðvum og sinum eftir áreynslu. Auk þess eru mjólkurvörur mjög ríkar af kalki og B2-vítamíni. Steinefnið kalíum í banönum er þekkt fyrir að vinna gegn sinadrætti og vöðvakrömpum. Kíví er mjög C-vítamínríkt. Líkaminn þarf aukið C-vítamín þegar hann er undir miklu álagi og er C-vítamín öflug andoxunarefni. Virkasta efnið í engiferrótinni er gingeról en það hefur sýnt sig hafa bólguhemjandi áhrif í líkamanum. Best er að fá sér þennan drykk strax að lokinni góðri æfingu til að endurnæra sig vel.
Orkudrykkur:
- 1 ½ kíví
- 2 epli
- ½ banani
- 2-3 cm af engiferrót
- 200 g hreint skyr eða jógúrt
- 200 ml vatn
- 3-4 ísmolar
Aðferð:
- Afhýðið ávextina, skerið í bita og blandið í blandara ásamt ísmolunum og vatninu í 30-40 sekúndur.
- Engiferrótin er sett í safapressu og safinn svo blandaður við drykkinn og blandað í um 10-15 sekúndur.
Verði ykkur að góðu!
