Konur eru í miklum meirihluta þeirra sem dvelja á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins í Hveragerði eða tvær konur á móti hverjum karli. Í fyrra voru karlar 31 prósent gesta en konur 69 prósent. Þetta hlutfall hefur verið óbreytt árum saman en á árunum 2012-2025 var hlutfallið einnig 31 prósent karla en 69 prósent konur.
Mun fleiri dvalargestir koma frá landsbyggðinni en af höfuðborgarsvæðinu og skýrist það væntanlega af því að fleiri endurhæfingarúrræði eru á höfuðborgarsvæðinu. Íbúar höfuðborgarsvæðisins eru 64 prósent landsmanna en þaðan koma 55 prósent dvalargesta. Á Norðurlandi búa 10 prósent landsmanna en þaðan koma 18 prósent dvalargesta.
Hlutfallslega eru dvalargestir flestir á aldrinum 60-80 ára. Þannig eru 13 prósent landsmanna á sjötugsaldri en 29 prósent dvalargesta. Þá eru 8 prósent landsmanna á áttræðisaldri en 29 prósent dvalargesta.






