Ætihvönn (Angelica archangelica) er einhver merkingarmesta og dýrmætasta nytjajurt í sögu Íslands. Hún hefur fylgt Íslendingum allt frá landnámi og verið nýtt sem matvæli, dýr munaður í viðskiptum, öflug lækningajurt og loks sem undirstaða í nútíma heilsuvörum. Hún er ein fárra nytjaplantna sem á uppruna sinn norðan heimskautsbaugs og þótti íslenska hvönnin einstaklega bragð- og kraftmikil
Nafnið Angelica archangelica dregur uppruna sinn af sögu þess efnis að engil hafi dreymt munk og sýnt honum jurtina sem vörn gegn bólusótt og drepsóttum í Evrópu. Á Íslandi var hún, og er, talin búa yfir gríðarlegum lækningamætti.
Áður fyrr, þegar grænmetisrækt á íslandi var sáralítil, voru ferskir, safaríkir stönglar borðaðir beint (svipað og sellerí í dag) eða soðnir í hnausþykka grauta með mjólk. Rræturnar voru þurrkaðar og malaðar út í mjöl til brauðgerðar eða nýttar til að drýgja mat í harðindum. Hún var notuð sem krydd í matvæli og til að bragðbæta brennivín og aðra drykki.
Eftir að hafa fallið aðeins í gleymsku á 20. öld, hefur ætihvönnin fengið mikla uppreisn æra á síðustu áratugum. Íslensk fyrirtæki rannsaka nú og nýta jurtina í stórum stíl. Afurðir eins og SagaPro eru nú fluttar út um allan heim.
Heimildir: Vísindavefurinn og ,,Íslenskar lækningajurtir“ eftir Arnbjörgu Lindu Jóhannsdóttur.
Hér er marinering úr ætihvönn sem passar með nánast hverju sem er. Með þessari marineringu er hægt að marinera hvaða prótein sem er og líka dressa eldað grænmeti, svo dæmi séu nefnd. Svo er líka hægt að gusa henni út í gríska jógúrt, bæta við rifnum parmesanosti og piparrót og þá erum við komin með holla grillsósu sem rífur í.
Marinering:
- 300 ml bragðlítil olía
- 3 hvítlauksrif
- 10-15 ætihvannarlauf, gróft söxuð
- Nýmalaður svartur pipar og íslenskt flögusalt
- Smá sletta af truffluolíu
Aðferð:
- Blandað saman með töfrasprota eða í matvinnsluvél í örfáar sekúndur. Ef blandað er of lengi getur komið heybragð af hvönninni.
Smjörsteiktar kartöflur með ætihvönn:
- 500 g oðnar smáar kartöflur með hýðinu
- Nokkrir litlir ætihvannarstilkar og lauf
- 4 hvítlauksrif
- Nokkrir kaldir smjörteningar
- Nýmalaður svartur pipar og íslenskt flögusalt
Aðferð:
- Kartöflur soðnar í söltu vatni ásamt nokkrum ætihvannarstilkum og piparkornum.
- Kartöflurnar settar á heita pönnu með smávegis af olíu. Hvítlauksrifjum og ferskum ætihvannarstilkum og laufum bætt við ásamt nokkrum smjörteningum. Látið malla við rúmlega meðalhita þangað til hvönnin er orðin ristuð og stökk.
- Svo má borða hvönnina með. Hún bragðast eins og besta snakk þegar hún hefur verið steikt.
Skyrídýfa með ætihvönn:
- Lítil askja hreint skyr
- Fínsöxuð ætihvannarlauf
- Eplaediksletta
- Íslenskt flögusalt
Aðferð:
- Saxið laufin ofurblíðlega með beittum hníf svo þau merjist ekki og haldi fersku bragði sínu.
- Blandið öllu saman. Þessi dýfu er frábært að nota með nýuppteknu þunnskornu rótargrænmeti eins og rófum, radísum, gulrótum.
Uppskriftir, myndir og texti: Ragnar Pétursson, matreiðslumeistari á Heilsustofnun Náttúrulækningafélagsins.







