Grasaferð Náttúrulækningafélags Reykjavíkur sem fór fram í gær, tókst einstaklega vel. Góð þátttaka var í grasaferðinni og veðurguðirnir léku við hvern sinn fingur.
Hulda Sigurlína Þórðardóttir fyrrverandi hjúkrunarforstjóri HNLFÍ leiddi hópinn og fræddi fólk um lækningajurtir sem finnast í nágreinni HNLFÍ í Hveragerði. Miklar og skemmtilegar umræður sköpuðust um lækningajurtirnar og virkni þeirra.
Gengið var um hlíðar Reykjafjalls og gafst þátttekndum kostur á að týna þær jurtir sem heilluðu þá.
Að lokinni ferðinni snæddu þátttakendur saman mat í matsal HNLFÍ. Þeir sem það vildu gátu einnig skellt sér í sund á HNLFÍ.
Náttúrulækningafélag Reykjavíkur þakkar öllum þeim sem tóku þátt í ferðinni, innilega fyrir skemmtilega ferð.