Ferskt salat með parmaskinku, perum og brómberjum birtist á matarvef Morgunblaðsins og ég varð að prófa. Aðlagaði það að því sem ég átti í skápunum og hafði skinkuna í stórum bitum svo fólk gæti valið. Aðalmyndin er án skinku en hér að neðan með 24 mánaða serrano skinku. Ég þvoði klettasalatið og setti örlítinn sítrónusafa yfir til að gefa bit og perurnar voru settar í lög með appelsínusafa og hunangi. Virkaði mjög vel í báðum tilfellum. Notaði bláber og hindber af því ég átti þau og bætti við örlitlu af pistasíum sem voru í skápnum. Baghette er nauðsynlegt á kantinn.
Þú þarft:
- 100 g klettasalat
- 2 perur
- 120 g serrano skinka (valkvætt)
- 200 g brie
- 100 g ristaðar furuhnetur
- Fersk ber
- Sprettur
- Ólífuolía
- Sjávarsalt
Aðferð:
- Klettasalatið skolað og baðað í sítrónusafa. Perurnar skornar og baðaðar í appelsínusafa og smá hunangi. Þeir sem nota skinku bæta henni ofan á salatið og perurnar. Bætið við osti í bitum og þeim berjum sem þið notið. Skreytið með sprettum og ristuðum hnetum. Dass af góðri olíu og sjávarsalti og baghettubrauð nauðsynlegt með.

Myndir: Pálmi Jónasson
