Dásamlega einföld en sérdeilis bragðgóð eggjakaka úr smiðju Yotam Ottolenghi. Harrisan og karmeliseraði laukurinn eru í lykilhlutverki í eggjakökunni. Manchego osturinn smellpassar en ég hef líka notað emmentaler ost og cheddar. Það má líka skipta fersku kóríander út fyrir basilíku eða steinselju. Lime á kantinum gefur fallegan lit.
Þú þarft:
- 3 msk ólífuolía
- 3 laukar
- 12 egg
- 100 ml rjómi
- 5,5 msk harissa
- 2 tsk nigella fræ
- 15 gr ferskt kóríander
- 110 gr manchego ostur
- 2 lime
- Salt og pipar
Aðferð:
- Steikið laukinn á pönnu við meðalhita í 15 mínútur. Hrærir reglulega en laukurinn á að verða fallega gullinbrúnn og vel karmeliseraður. Setjið laukinn í skál með hrærðum eggjum, rjóma, harissu, nigella fræjum, fersku kryddi og saltiog pipar.
- Penslið pönnu sem má fara í ofn með olíu. Hellið eggjablöndunni út í og setjið rifinn ost yfir. Bakið við 200-220 gráður í um 15 mínútur eða þar til eggjakakan er fallega gullinbrún. Skreytið með ferskum kryddjurtum og lime.
Mynd: Pálmi Jónasson
