Ítalskt bolognese er yfirleitt gert úr nauti, svíni eða kálfakjöti en hér eru linsubaunir í aðalhlutverki. Uppskriftin er upphaflega komin frá Nico Pallotta og Louise Vestergaard hjá The Plant Based School en er hér í aðeins breyttri útgáfu. Það er ekkert heilagt við hráefnin. Notið það sem þið eigið í skápnum. Uppskriftin passar fyrir sex og ekki verra að hafa baguette brauð á kantinum.
Bolognese:
- 2-3 msk olía
- 1 laukur
- 2 gulrætur
- 1 sellerístöngull
- 2 hvítlauksrif
- 100 g sveppir
- 1 tómatdós
- 1 msk tómatpúrra
- 2 dl grænmetissoð
- 1 dl rauðvín
- 2 dósir linsubaunir
- Salt og pipar
- 2 msk balsamic edik
- 800 g pasta
Aðferð:
- Saxið grænmetið og steikið í olíu ásamt skornum sveppum, salti og pipar.
- Bætið öðlum hráefnum við og látið malla í korter. Balsamic edikið fer í blálokin.
- Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum og blandið öllu saman. Skreytið með ferskum kryddjurtum og parmesan eða því sem til er í eldhúsinu.
Verði ykkur að góðu!
Myndir: Pálmi Jónasson og Nico og Louise


