Ofnbakaður lax með hunangi og limeberki ásamt kjúklingabaunasalati með hvítlauk, sítrónuberki og fetaosti. Granateplasíróp í lokin setur punktinn yfir I-ið. Þetta verður enn ferskara með konfekt tómötum í lokin. Þessi uppskrift smellpassaði fyrir þrjá.
Fiskurinn:
- 600 g laxaflak
- Hunang
- 1 limebörkur
Aðferð:
- Roðdragið laxaflakið og þerrið fiskinn vel.
- Setjið 1-2 tsk af hunangi ofan á fiskinn og dreifið jafn yfir með höndunum. Rífið börk af lime jafn yfir fiskinn.
- Bakið í 200 gráðum í 10-15 mínútur.
Baunasalat:
- 1 dós kjúklingabaunir
- Ólífur
- 1 msk harissa
- 3 msk ólífuolía
- 3 hvítlauksrif
- 1 sítrónubörkur
- Ferskt basil
- 1 stk fetaostur
- 1 msk granateplasíróp
Aðferð:
- Blandið kjúklingabaunum, skornum ólífum, harissa, olíu, söxuðum hvítlauk og rifnum sítrónuberki í eldfast fat.
- Bakið við 200 gráður í 25 mínútur. Hrærið öðru hvoru.
- Takið út og skreytið með fetaosti, basil og smávegis af granateplasírópi ef þið eigið það til. Nýtið einnig sítrónu og/eða lime sem notaðar voru barkarrifin í uppskriftinni.
Myndir: Pálmi Jónasson




