Marokkóskur fiskur með kjúklingabaunum úr smiðju Bill Granger. Gott að blanda fisktegundum og ekki verra ef þið eigið smávegis af rækjum eða öðru sjávarfangi í fyrsti. Einfalt, fljótlegt og gott. Passlegt fyrir sex.
Þú þarft:
- 2 msk olía
- 1-2 laukar
- 2 hvítlauksrif
- 4-5 msk ferskur engifer
- 2 tsk cummin
- 2 tsk túrmerik
- 1 kanilstöng
- 1/2 tsk cayenne pipar
- 1-2 dósir tómatar
- 750 g fiskur
- 1-2 dósir kjúklingabaunir
- 3 msk hunang
- Salt og pipar
- Ferskt krydd
- Ristaðar hnetur eða möndlur
Aðferð:
- Mýkið laukinn í olíu í 5 mínútur. Bætið mörðum hvítlauk, rifnu engifer, cummin, túrmerik og kanilstöng á pönnuna og látið malla í 2-3 mínútur. Bætið við cayenne pipar, tómötum og 350 ml af vatni og sjóðið varlega í um 10 mínútur.
- Bætið fiskmetinu við, ásamt baunum, hunangi, salti og pipar og sjóðið við lágan hita í 7-8 mínútur.
- Skreytið með ristuðum hnetum eða möndlum og ferskum kryddjurtum eins og basil eða kóríander.

Myndir: Pálmi Jónasson
